Landsnet, Þorlákshöfn

Verkkaupi: Landsnet

Samantekt:

Í þessu verki sáum við um að grafa og leggja strengi frá tengivirki Landsnets við Suðustrandaveg niður að First Water og GeoSalmo sem bæði eru stór landeldisverkefni sem rísa niður við sjó.
Samtals voru lagðir tæpir 22 km af 33 kV háspennustrengjum og skurðgröfur 5 km. Lagnaleið var nánast öll í klöpp.

Helstu verkþættir:

  • Gröftur, fleygun og brott akstur u.þ.b. 5 kílómetrar af skurðum.
  • Um 22 km af strengjum drengir eða keyrðir út.
  • Ídráttarör, jarðvír og ljósleiðararör lagt með strengjunum.
  • Sérunninn varmaleiðnissandur fluttur á staðinn og sandað yfir strengi með honum.
  • Götu- og stígaþveranir. Suðurstrandavegur var t.d. þveraður.
  • Inntaksvinna – koma strengjum inn hús hjá First Water og tengivirki Landsnets.
  • Frágangur og fyllingar.