Öryggis- og heilbrigðisstefna Berg Verktaka ehf

 

Berg Verktakar leggja ríka áherslu á að starfsemin sé eins örugg og kostur er og að engin vinna sé svo brýn að hún réttlæti áhættu fyrir heilsu eða öryggi fólks.

Markmið félagsins er að allir sem starfa fyrir Berg Verktaka fari heilir heim að loknum vinnudegi.

Öryggis- og heilbrigðisstefnan er hluti af samþættu stjórnunarkerfi félagsins samkvæmt ÍST EN ISO 45001.

Öryggis- og heilbrigðisstefna félagsins byggir á eftirfarandi meginatriðum:

  • Að koma í veg fyrir slys, heilsutjón og vinnutengd veikindi með fyrirbyggjandi aðgerðum.
  • Að greina hættur, meta áhættu og beita viðeigandi stjórnunaraðgerðum í allri starfseminni.
  • Að uppfylla gildandi lög, reglugerðir og aðrar bindandi kröfur um öryggis- og heilbrigðismál.
  • Að tryggja að viðeigandi öryggisbúnaður sé til staðar, notaður og viðhaldið.
  • Að skipuleggja verk og forgangsraða þannig að tekið sé fullt tillit til öryggis og heilsu.
  • Að vinna að stöðugum umbótum í öryggis- og heilbrigðismálum.
 

Með reglubundinni þjálfun og fræðslu tryggjum við öryggis- og heilbrigðisvitund starfsmanna. Starfsmenn eru mikilvægur þáttur að umbótum í öryggis- og heilbrigðismálum og eru hvattir til að koma með ábendingar og tillögur um hvað betur mætti fara, m.a. í gegnum öryggisfulltrúa starfsmanna.