Umhverfisstefna Berg Verktaka ehf
Berg Verktakar skuldbinda sig til að starfa á ábyrgan og sjálfbæran hátt með vernd umhverfisins að leiðarljósi. Við leggjum áherslu á að draga úr neikvæðum umhverfisáhrifum starfseminnar og stuðla að skilvirkri nýtingu auðlinda í öllum framkvæmdum.
Umhverfisstefnan er hluti af samþættu stjórnunarkerfi félagsins samkvæmt ÍST EN ISO 14001:2015
Umhverfisstefna félagsins byggir á eftirfarandi meginatriðum:
- Að fylgja gildandi lög, reglugerðir og aðrar bindandi kröfur sem varða umhverfismál.
- Að takmarka mengun og lágmarka umhverfisáhrif frá starfsemi félagsins.
- Að nýta hráefni, orku og aðrar auðlindir á hagkvæman og ábyrgan hátt.
- Að stuðla að flokkun, endurnýtingu og ábyrgri meðhöndlun úrgangs og efna.
- Að velja umhverfisvænni lausnir, efni, tæki og vinnuaðferðir þegar það er raunhæft.
- Að lágmarka rask á náttúru og skila framkvæmdasvæðum í viðeigandi ástandi að loknum verkum.
- Að vinna að stöðugum umbótum í umhverfismálum með markvissri eftirfylgni og endurskoðun.
Með fræðslu og þátttöku tryggjum við umhverfisvitund starfsmanna.