Grindavík sprunguviðgerðir

Verkkaupi: Vegagerðin og almannavarnir

Samantekt

Eftir jarðhræringarnar á Reykjanesi og í Grindavík tókum við að okkur að lagfæra eða endurnýja lagnir, fylla í sprungur og ganga frá yfirborði að nýju. Að mörgu var að hyggja við þetta verkefni. Nokkur dæmi voru um að fráveita væri í sundur og laga þurfti halla á lögnum. Huga þurfti sérstaklega að öllu öryggi og fengu starfsmenn fræðslu um notkun á fallvarnarbúnaði og fallvarnarblökkum.

Helstu verkþættir:

  • Lagfæringa og endurlögn á fráveitu
  • Lagfæringa og endurlögn á hitaveitu
  • Lagfæringar á strengjum.
  • Fyllingar í sprungur
  • Frágangur