Varnargarðar

Verkkaupi: ÍSTAK

Samantekt

Hér voru verkefnin af ýmsum toga en stór hluti af vinnunni var ýmiskonar mokstur og vinna á 50 tonna gröfum og jarðýtu. Á beltavélunum var unnið við mokstur á bíla og búkollur, efni var hlaðið upp í varnargarða og efsti parturinn mótaður. Efsti parturinn af flestum varnargörðunum var mótaður með beltavélum þar sem breiddin leyfir ekki akstur á búkollum og útjöfnum með jarðýtu. Jarðýtan var mikið notuð í að tippa út efni í görðunum ásamt því að vinna í vega- og slóðagerð.

Í varnargörðunum féll að auki til ýmis vinna, s.s. akstur á búkollum, fleygun á rauðglóandi klöpp þar sem reynt var að komast niður á bilaðar lagnir. Hjálpað var til við ýmiskonar lagnavinnu og var t.d. unnið við að fergja núverandi stofnlögn sem liggur ofanjarðar frá Svartsengi yfir í Reykjanesbæ til að fyrirbyggjað að hún skemmdist ef hraun myndi flæða yfir hana. 

Helstu verkþættir:

  • Vinna í kringum lagnir.
  • Jarðýta, tippa út efni, slóða og vegagerð.
  • Vélavinna við hin ýmsu verkefni.