Verkkaupi: Reykjavíkurborg
Samantekt
Í vorleysingum hafði miðju stöpull brúarinnar yfir Hólmsá lagst á hliðina og brá Reykjavíkurborg á það ráð að skipta út I-bitunum undir brúnni. Undir brúnni voru tveir 360 I-bitar og þurfti að skipta þeim út fyrir tvo 500 I-bita til að auka burðargetuna. Voru ýmsar hugmyndir í gangi um hvernig best væri að útfæra þetta. M.a. fá stóran krana til að hífa brúnna af bitunum, skipta bitunum út og hífa brúnna síðan á sinn stað. Það fór þó þannig að brúin var tjökkuð upp þar sem hún stóð og nýir bitar dregnir undir hana. Gekk verkið vonum framar og kláraðist á tveim dögum.
Skemmtilegt verkefni og aðeins öðruvísi en það sem við erum að gera flesta daga.
Helstu verkþættir:
- Útskipti á burðarbitum.

