Umferðaröryggisúrbætur Sæbraut-Kleppsmýrarvegur

Verkkaupi: Reykjavíkurborg

Samantekt

Í þessu verki vorum að gera breytingar á gatnamótum Sæbrautar, Kleppsmýrarvegar og Skeiðarvogs. Meðal annars var önnur beygjuakreinin frá Kleppsmýrarvegi inn á Sæbraut lögð af. Einnig voru gerðar fleiri breytingar á gatnamótunum og stígtengingar betrumbættar.

Helstu verkþættir:

  • Öll jarðvinna og undirvinna fyrir malbik og hellulagnir.
  • Öll jarðvinna í kringum umferðaljós.
  • Uppúrtekt og færsla á umferðarljósum. Færsla á stjórnkassa fyrir umferðarljós, tengibrunnar og ídráttur fyrir umferðarljós.
  • Allur frágangur á yfirborði.