Verkkaupi: Veitur
Samantekt
Eldri skólpdælustöð var rifin. Nýr tengibrunnur steyptur sem tók á móti tveimur DN 900 þrýstilögnum. Út frá brunninum var síðan lögð DN1200 lögn sem var tengt á eldri lögn. Tengistykki lagna við brunn voru sérsmíðuð úr ryðfríu stáli og innsteypt.
Steyptur var 5 metra hár veggur og rennsli breytt í stórum staðsteyptum tengibrunni sem tekur mót rennsli inn í skólpsælustöðina við Naustavog. Inn í brunninn kom rennsli úr DN 1200 lögn sem þurfti að breyta úr því að renna í gegnum brunninn yfir í að renna inn í nýja dælustöð. Ásamt því að steypa vegg til að breyta rennsli, þurfti einnig að steypa og móta rennslisrás í gegnum brunninn. Hún var nokkuð stór þar sem þetta var gert í kringum DN1200 lögn.
Samantekt á helstu verkþáttum.
- Lagning á DN900 þrýstilögnum
- Lagning á DN1200.
- Uppsteypa á brunnum.
- Breytingar á brunnum.
- Rif á dælustöð.


