Gæðastefna Berg Verktaka ehf
Berg Verktakar starfa við jarðvinnu, innviða- og mannvirkjagerð, bæði fyrir viðskiptavini og í eigin verkefnum. Félagið leggur áherslu á að skila vel unnum verkum, á umsömdum tíma og í samræmi við kröfur um gæði, öryggi og fagmennsku.
Gæðastefnan er hluti af gæðastjórnunarkerfi félagsins samkvæmt ÍST EN ISO 9001:2015 og tekur til allrar starfsemi Berg Verktaka ehf.
Gæðastefna félagsins byggir á eftirfarandi megináherslum:
- Að uppfylla kröfur viðskiptavina, verkkaupa og annarra hagsmunaaðila.
- Að fylgja gildandi lögum, reglugerðum, stöðlum og samningum sem varða starfsemina.
- Að skipuleggja og framkvæma verk með skilgreindum ferlum og skýru ábyrgðarskipulagi.
- Að tryggja að notaður sé viðeigandi búnaður, tæki og gögn við framkvæmd verka.
- Að stuðla að faglegum vinnubrögðum, góðum samskiptum og rekjanleika í framkvæmd.
- Að bæta stöðugt gæði, verklag og frammistöðu með markvissum umbótum.