Verkkaupi: Reykjavíkurborg
Samantekt
Í þessu verki tókum við að okkur að gera vaðlaug við Húsdýragarðinn í Laugardal. Verkið var ekki ýkja stórt en nokkuð skemmtilegt. Steypa þurfti upp laugina ásamt því að gera lítinn dæluskúr þar sem var búnaður fyrir vaðlaugina s.s. dælur fyrir gosbrunna.
Helstu verkþættir:
- Jarðvegsskipti og gröftur.
- Allar grunnlagnir og lagnir út í laugina.
- Smíði á tengiskúr eða stjórn skúr sem m.a. stýrir gosbrunnum.
- Uppsteypa á vaðlauginni.
- Allur frágangur í kring s.s. sérsmíðaður bekkur og hellulögn.




