Berg Verktakar ehf

Um okkur

Berg Verktakar ehf eru í kjarna sínum innviðfyrirtæki þar sem opinber innviðaverk s.s. gatna- og stígagerð, lóða- og yfirborðsfrágangur ásamt því að þjónusta veitufyrirtæki með endurnýjun og nýlagnir á öllum veitumiðlum. Að auki höfum við víðtæka reynslu af því að þjónusta sveitafélög og Vegagerðina með snjómokstur og hálkuvarnir.
Í auknu mæli hefur félagið farið í eigin fjárfestingaverkefni með byggingu íbúða- og iðnaðarhúsnæðis víðs vegar á landinu. 
Við leggjum mikið upp úr góðum samskiptum við okkar verkkaupa og höfum við nú í bráðum 10 ár átt farsælt samband við sömu opinberu verkkaupa allt frá því að félagið var stofnað og fléttast það inn í lykiláherslur félagsins þar mikið er lagt upp úr góðum samskiptum við okkar verkkaupa.
Félagið hefur yfir að ráða öflugum tækjaflota og góðu starfsfólki sem hefur með öguðum vinnubrögðum tryggt góðan rekstur á okkar verkefnum

Hafðu samband

Helstu tengiliðir

Davíð Fjeldsted

Framkvæmdastjóri og eigandi

Guðmundur Hlír Sveinsson

Verkefnastjóri og eigandi

Ásdís Sturlaugsdóttir

Fjármála- og mannauðsstjóri

Agnar Þór Fjeldsted

Gæðastjóri

Einar Víðir Gíslason

Verkstjóri

Gunnar Margeir Baldursson

Bílstjóri og öryggistrúnaðarmaður

Hilmar Úlfarsson

Verkstjóri byggingadeildar

Jón Ingimundur Jónsson

Verkstjóri

Sagan

Berg Verktakar ehf var stofnað árið 2016.
Í upphafi var helsti viðskiptavinur félagsins Gagnaveita Reykjavíkur, í dag Ljósleiðarinn,  þar sem ómælt magn af ljósleiðara var lagður á höfuðborgarsvæðinu.

Í dag eru helstu verkkaupar félagsins öll helstu sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu, Veitur, Vegagerðin, Landsnet.

Verkefnin hafa verið fjölbreytt en fyrst um sinn voru þetta minni en oft á tíðum tæknilega flókin verkefni. Mætti til dæmis nefna að steyptar voru vaðlaugar í Laugardalnum, kaldur pottur í Árbæjarlaug, útsýnispallur út á Granda, fjölmörg leiksvæði og leikskólalóðir voru endurnýjaðar.

Fyrirtækið hefur frá því það var stofnað verið í nokkuð örum vexti og samhliða því stækkuðu verkefnin. Gatnagerðarverkefni og stærri veituverkefni litu dagsins ljós og höfum við m.a. byggt fyrstu undirgöng á Selfossi ásamt því að leggja tugi kílómetra af heita- og kaldavatnslögnum. Nú síðustu misserum höfum m.a. komið að vinnu við varnargarða í kringum Grindavík og Svartsengi ásamt því að leggja háspennustrengi í vindmillugarðinum upp í Vaðölduveri.

Árið 2019 var farið af stað með fyrsta byggingarverkefnið sem var staðsteypt tvíbýlishús. Í framhaldinu tóku við fleiri byggingarverkefni og mættti til dæmis nefna iðnaðarhúsnæði, einbýlishús, raðhús og dæluhús. Árið 2023 var byggt átta hundruð fermetra húsnæði að Brúarfljóti 1 í Mosfellsbæ undir starfsemi félagsins.