Skóldælustöð Álftanesi

Verkkaupi: Garðabær. 

Samantekt

Staðsteypt dælustöð með stórum grjótgildrubrunni með tengingum við núverandi kerfi og breytingum af fyrirliggjandi kerfi. Uppsetning á dælum og öllum búnaði innanhúss.
Allar fráveitulagnir innanhúss voru úr ryðfríustáli.  Dælustöðin gekk rúma átta metra ofan í jörðina og var mikið grunnvatnsstreymi inn í holuna. Frágangur á húsinu að utan var úr cortenstáli.

Helstu verkþættir:

  • Jarðvegsskipti og gröftur.
  • Uppsetning á dælum og öllum lögnum innanhús.
  • Stálsmíði á pöllum og stígum.
  • Uppsetning á hlaupaketti.
  • Rafmagn og lagnir innanhúss.
  • Tengingar og aðlaganir á fyrirliggjandi fráveitu á svæðinu.
  • Frágangur á lóð og húsnæði að utan.