Verkkaupi: Reykjavíkurborg
Samantekt
Í þessu verki vorum að gera breytingar á gatnamótum Sæbrautar, Kleppsmýrarvegar og Skeiðarvogs. Meðal annars var önnur beygjuakreinin frá Kleppsmýrarvegi inn á Sæbraut lögð af. Einnig voru gerðar fleiri breytingar á gatnamótunum og stígtengingar betrumbættar.
Helstu verkþættir:
- Öll jarðvinna og undirvinna fyrir malbik og hellulagnir.
- Öll jarðvinna í kringum umferðaljós.
- Uppúrtekt og færsla á umferðarljósum. Færsla á stjórnkassa fyrir umferðarljós, tengibrunnar og ídráttur fyrir umferðarljós.
- Allur frágangur á yfirborði.




