Vaðlaug í Laugardal

Verkkaupi: Reykjavíkurborg

Samantekt

Í þessu verki tókum við að okkur að gera vaðlaug við Húsdýragarðinn í Laugardal. Verkið var ekki ýkja stórt en nokkuð skemmtilegt. Steypa þurfti upp laugina ásamt því að gera lítinn dæluskúr þar sem var búnaður fyrir vaðlaugina s.s. dælur fyrir gosbrunna.

Helstu verkþættir:

  • Jarðvegsskipti og gröftur.
  • Allar grunnlagnir og lagnir út í laugina.
  • Smíði á tengiskúr eða stjórn skúr sem m.a. stýrir gosbrunnum. 
  • Uppsteypa á vaðlauginni.
  • Allur frágangur í kring s.s. sérsmíðaður bekkur og hellulögn.