Víðimelur og Garðastræti

Verkkaupi: Veitur

Samantekt:

Endurnýjun á hitaveitu, rafmagni og götuljósum við Víðimel og Garðastræti í Reykjavík.
Í Garðastræti var lögð tvöföld 250 mm hitaveita ásamt háspennustrengjum. Farið var með nýjar lagnir inn í hús á nokkrum stöðum. Nokkur áskorun var að koma hitaveitunni fyrir þar sem mikið var af eldri lögnum í stéttarstæðinu.
Í Víðimel var hitaveita, rafmagn og háspenna endurnýjuð og var farið inn í flest húsin með nýtt rafmagn.

Helstu verkþættir:

  • Merkingar, götulokanir og götuþveranir.
  • Jarðvinna fyrir veitulagnir.
  • Hitaveita.
  • Rafmagn, háspenna, lágspenna, heimtaugar og götuljós.
  • Yfirborðsfrágangur, malbik, hellulögn og grásteinskantar.