Ljósleiðari

Verkkaupi: Gagnaveita Reykjavíkur – Ljósleiðarinn

Samantekt

Á síðastliðnum árum hafa Berg Verktakar lagt gríðarlega mikið af ljósleiðara vítt og breitt um suðvesturhorn landsins. Má þar nefna höfuðborgarsvæðið, Þorlákshöfn, Eyrabakka, Stokkseyri, Reykjanesbæ, Grindavík, Voga og Borgarfjörð. Í þessum ljósleiðaraverkum er búið að tengja þúsundir heimila og fyrirtækja, grafa meira en 100 km af skurðum og leggja hundruð km af ljósleiðaralögnum.

Helstu verkþættir:

  • Yfir 150 km af skurðum.
  • Í kringum 600 km af fjölpípurörum og heimtaugarörum.
  • Yfir 40.000 fermetrar af hellum og malbiki.
  • Yfir 50 km af söguðu malbiki.
  • Í kringum 500 götuþveranir.
  • Rúmlega 200 brunnar.
  • Í kringum 5.000 inntök inn í hús og fyrirtæki.