Verne Global

Verkkaupi: Verne Global

Samantekt:

Þetta verk fólst í því að koma 132kV háspennustrengjum annarsvegar frá tengivirkinu á Fitjum og hins vegar frá tengivirkinu á Njarðvíkurheiði að gangaveri Verne Global í Ásbrú. Einnig þurfti að koma strengjum inn í tengivirki og spennivirki á öllum endum.

Var um tvítengingu að ræða til að auka orkuöryggi fyrir gagnaverið. Leggurinn frá Njarðvíkurheiði inn að Ásbrú var 5 km og leggurinn frá Fitjum að Ásbrú er um rúmir 2 km. Samtals um 7 km af skurðum og 21 km á 132kV strengjum.  Allt sem tengdist þessum streng var í stærri kantinum, strengurinn sjálfur var 1700 kvaðröt og hvert kefli 4 metrar í þvermál og rúm 12 tonn.  Strengurinn var ýmist keyrður út beint af vagni eða dreginn út.  Hluti af verkinu var einnig að draga rúmlega 9 km af 11kV strengjum á gegnum ídráttarör á milli húsa inn á lóð Verne Global. Samtals voru þetta því um 30 km á af strengjum.

Helstu verkþættir:

  • Öll almenn jarðvinna, s.s. gröftur, fleygun og fyllingar.
  • Útdráttur á 30 km af háspennustrengjum.
  • Allur frágangur á yfirborði s.s. sáning, þökulögn, hellulögn og malbikun.
  • Þveranir á götum og göngustígum.
  • Borun undir götur.