Verkkaupi: ÍSTAK
Samantekt:
Í Vaðölduveri sáum við um að leggja alla háspennustrengi á milli 28 vindmilla sem verið var að reisa.
Einnig sáum við um að leggja vatnsveitu fyrir steypustöð og vinnubúðir. Kaplar í verkinu eru 33 kV, ýmist einleiðarar eða þríleiðarar. Voru strengirnir keyrðir út af keflavagni og lagðir beint í skurðinn. Berg Verktakar útveguðu allan búnað til að leggja út strengina s.s. sérsmíðaða „rúlluglugga“ til að stýra strengjum ofan í skurðina með beltavélum.
Helstu verkþættir
- Öll almenn jarðvinna, s.s. gröftur, fleygun og fyllingar. Heildarskurðgröftur um 25 km.
- Vatnsveita 55mm-225 mm samtals um 3km.
- Útlagning á háspennustrengjum samtals um 70 km.
- Útdráttur á ljósleiðararörum og jarðvír.
- Allur frágangur á yfirborði.
Verktími: 2025- 2026




