Verkkaupi: Reykjavíkurborg
Samantekt:
Þetta er sennilega eitt fyrsta steypuverkefnið sem Berg Verktakar tóku að sér. Í þessu verki buðum við í kaldan pott sem átti að staðsteypa á sundlaugarsvæðinu í Árbæjarlaug. Til að minnka óþægindi fyrir sundlaugagesti og til þess að koma í veg fyrir að sag og önnur óhreinindi væru út um allt sundlaugarsvæðið stungum við upp á því að potturinn yrði steyptur annarstaðar og hífður á svæðið. Reykjavíkurborg samþykkti þessa tillögu. Potturinn var steyptur hjá Einingarverksmiðjunni og fór svo að potturinn var steyptur þar á hvolfi. Eftir að steypan hafði tekið sig var honum snúið við og fengum við að klára að flísaleggja pottinn inni hjá þeim. Hífingin á pottinum var nokkuð umfangsmikil þar sem hann viktaði rúm 15 tonn og hífa þurfti sjálfan pottinn yfir hluta af laugarhúsinu eða rúma 20 metra.
Þó svo að potturinn væri ekki stór var tæknibúnaðurinn sem fylgdi honum nokkuð umfangsmikill, sem settur var upp í kjallara laugarinnar. Á verðlagi ársins 2018 var það um 10 milljónir bara í búnað sem fylgdi. Má þar nefna u.þ.b. tveggja rúmmetra yfirfallsker, klórstöð, tæplega tveggja rúmmetra sandhreinsi tæki, sýnatökudæla/-búnaður og hinar ýmsu dælur.
Helstu verkþættir:
- Steypa pott.
- Flísaleggja pott.
- Hífa pott.
- Allur mögulegur búnaður sem hægt er að hugsa sér fyrir einn kaldan pott.
- Setja niður pott og ganga frá yfirborði.
- Allar langir í kringum pottinn innan og utan húss.




