Berg Verktakar hljóta alþjóðlega ISO vottun stjórnkerfum

Berg Verktakar ehf hafa hlotið vottun á stjórnkerfi félagsins samkvæmt alþjóðlegu ISO stöðlunum 9001, 14001 og 45001. Vottunin nær yfir alla starfsemi félagsins og var framkvæmd af Versa Vottun í samstarfi við SBcert.

ISO 9001 snýr að gæðastjórnun og tryggir að verkferlar og þjónusta félagsins séu skilvirk og uppfylli væntingar viðskiptavina.

ISO 14001 tekur til umhverfismála og staðfestir vottunin að félagið vinni markvisst að því að lágmarka umhverfisáhrif.

ISO 45001 leggur áherslu á öryggi og heilbrigði starfsfólks.

Það er stór áfangi fyrir okkur að fá þessa vottun og staðfestingu á því að við vinnum eftir viðurkenndum stöðlum, Við leggjum ríka áherslu á gæði, umhverfisábyrgð og öryggi starfsfólks og þessi vottun endurspeglar þá stefnu.