Bugðufljót 2, Mosfellsbæ

Í janúar byrjuðu Berg Verktakar á nýju byggingarverkefni við Bugðufjót 2.

Um er að ræða tæplega tvö þúsund fermetra iðnaðarhúsnæði á tveimur hæðum. Húsið verður forsteypt og er búið að semja við ÍSTAK um að steypa fyrir okkur einingarnar. Þakklæðning og burðarviðir í þakið koma frá Límtré-Vírnet.

Möguleiki verður að skipta húsinu niður í 7 bil á hvorri hæð, u.þ.b. 130 fermetrara hvert bil. Að sama skapi verður möguleiki á að sameina bil til að gera eignina stærri. Hvert bil verður með mjög góða lofthæð og þá sérstaklega á neðri hæðinni en þar verður lofthæðin í kringum 5,7 metrar. Aksturshurðir verða einnig í góðri stærð eða 4,8 metrar á hæð og 4,2 metrar á breidd.
Ef einhver er áhugasamur um kaup eða leigu á iðnaðarbili þá er um að gera að hafa sambandi. Stefnt er að því að húsnæðið verði klárt í árslok 2026.