Brúarfljót 3

Verkkaupi: Eigið fjárfestingarverkefni. 

Samantekt

Við Brúarfljót 3 byggðu Berg Verktakar 2.350 fermetra atvinnuhúsnæði í tveimur húsum. Húsunum var skipt niður í 31 bil sem eru á bilinu 54-120 fermetrar. Bilin voru ýmist seld eða fóru í leigu. Burðarvirki húsanna er límtré og eru þau klædd steinullareiningum. Berg Verktakar sáu sjálfir um alla verkþætti aðra en rafmagn og pípulagnir innanhúss.

Helstu verkþættir:

  • Jarðvegsskipti og gröftur.
  • Allar grunnlagnir og olíuskilja. Nokkur hundruð metrar af fráveitulögnum.
  • Steyptir sökklar og plata. U.þ.b. 400 metrar af sökklum.  
  • Uppsetning á húsi ásamt fullnaðarfrágangi.
  • Allar rafmagn.
  • Allar pípulagnir.
  • Allur frágangur á lóð, s.s. u.þ.b. 4.000 fermetra malbikun.