Verkkaupi: Reykjavíkurborg
Samantekt
Út á granda gerðum við malbikaðan stíg og útsýnispall. Stígurinn var um 1.500 metrar og honum fylgdi hellulögð áningasvæði með bekkjum og ruslafötum. Sett var upp lýsing á hluta stígsins.
Að auki var steyptur glæsilegur útsýnispallur en það var ekki ein bein lína í pallinum og var hann járnbentur fyrir stríðsátök. Nokkra útsjónarsemi þurfti í þessa smíði, t.d. voru öll mót sérsmíðuð til að móta bogana í pallinum. Bekkirnir á pallinum voru sérsmíðaðir og var hluti af timbrinu t.d. framkantur á pallinum sérinnfluttur frá S-Ameríku. Sérpöntuð voru LED ljós í allan pallinn.
Helstu verkþættir:
- Jarðvegsskipti og skurðgröftur fyrir stíg og strengji.
- Heflun og malbikun ásamt hellulögn og þökulögn. Samtals rúmmlega 8.000 fermetrar af þökum.
- Mótasmíði, uppsláttur og niðurlögn á steypu.
- Sérsmíðaðir bekkir.
- Handrið úr harðvið og ryðfríu stáli
- Götulýsing og LED lýsing í útsýnispall.





