Berg Verktakar eru á lista Creditinfo yfir Framúrskarandi fyrirtæki árið 2025, fimmta árið í röð. Aðeins um 2% fyrirtækja á landinu uppfylla þær kröfur sem gerðar eru til að hljóta þessa viðurkenningu og erum við virkilega stolt af þessum árangri.
Viðurkenning Creditinfo byggir á ítarlegu mati á rekstri fyrirtækja þar sem horft er til stöðugleika, fjárhagslegs styrks og áreiðanleika í viðskiptum. Til þess að teljast framúrskarandi þarf að uppfylla ströng skilyrði sem eru meðal annars þessi:
- Að vera í lánshæfisflokki 1-3
- Ársreikningi skilað inn innan átta mánaða eftir uppgjörsdag
- Að vera með rekstrartekjur að lágmarki 60 milljónir króna fyrir síðustu tvö ár
- Framkvæmdarstjóri skráður í fyrirtækjaskrá RSK
- Jákvæð rekstrarniðurstaða (EBIT) síðustu þrjú ár
- Eiginfjárhlutfall að lágmarki 20% síðustu þrjú ár
- Eignir að lágmarki 120 milljónir króna síðstu tvö ár
Við hjá Berg Verktökum leggjum ríka áherslu á vönduð vinnubrögð, öryggi á verkstað og gott samstarf við verkkaupa og samstarfsaðila. Þessi viðurkenning er því ekki aðeins staðfesting á fyrri árangri heldur einnig hvatning til að halda áfram að þróa starfsemina og styrkja þjónustuna enn frekar.
Við viljum þakka starfsfólki, samstarfsaðilum og viðskiptavinum fyrir traustið og gott samstarf.
