Fyrirmyndarfyrirtæki í rekstri fimmta árið í röð

Berg Verktakar hafa hlotið viðurkenninguna Fyrirmyndarfyrirtæki í rekstri árið 2025, fimmta árið í röð. Við erum afar stolt af þessum árangri sem endurspeglar stöðugan rekstur og góða stjórnarhætti.

Viðskiptablaðið og Keldan veita árlega viðurkenningu þeim fyrirtækjum sem sýna fram á heilbrigðan og stöðugan rekstur. Uppfylla þarf ströng skilyrði til þess að hljóta þessa viðurkenningu en horft er til eftirfarandi þátta:  

  • Ársreikningar fyrir síðustu tvö reksrarár þurfa að liggja fyrir
  • Afkoma þarf að hafa verið jákvæð.
  • Tekjur þurfa að hafa verið umfram 50 milljónir króna.
  • Eignir þurfa að hafa verið umfram 90 milljónir króna.
  • Eiginfjárhlutfall þarf að hafa verið umfram 20%.

Þessi viðurkenning er okkur mikil hvatning til að halda áfram á sömu braut og þróa starfsemina enn frekar. Við viljum þakka starfsfólki, samstarfsaðilum og viðskiptavinum fyrir traustið og gott samstarf.