Byggingadeild

Við tökum að okkur byggingar á iðnaðar-og íbúðarhúsnæðum. Einnig tökum við að okkur byggingar tengivirkja og fleira.

Vetrarþjónusta

Við sjáum um snjómokstur/hálkuvarnir fyrir Vegagerðina, sveitarfélög, húsfélög, fyrirtæki og einstaklinga.

Vega- og gatnagerð

Vegurinn liggur til Berg verktaka þegar kemur að vega-og gatnagerð en á ferliskránni eru t.d. hringtorg, undirgöng, stígar, umferðaljós, götur og vegir ásamt öllu því sem tilheyrir slíkum mannvirkjum.

Lagnir, veitur og strengir

Veitulagnir og jarðstrengir eru eitt af sérsviðum Berg verktaka. Fyrirtækið býr yfir eigin búnaði og sérþekkingu til að annast umfangsmikil strengja- og veituframkvæmdaverkefni. Berg Verktakar lögðu á árinu 2025 yfir 100 km af 11–132 kV jarðstrengjum og sinntu endurnýjun og nýlögnum á hita- og vatnsveitum víða á suðvesturhorni landsins.

Jarðvinna

Við sérhæfum okkur í allri almennri jarðvinnu. Hvort sem það er grunnur að einbýlishúsi eða jarðvinna í kringum flóknari byggingarframkvæmdir.